KJ verktakar eru alhliða bygginga- og jarðvegsverktakar en fyrirtækið byggir á áratugareynslu eiganda fyrirtækisins - Kristjáns Jónssonar.
Verkefnin sem fyrirtækið hefur komið að eru af ýmsum toga og spanna allt frá smíði sólpalla til stórra verkefna er tengjast virkjunarframkvæmdum.
Höfuðstöðvar KJ verktaka eru að Gagnheiði 47 á Selfossi og þar er skrifstofa fyrirtækisins, vélageymsla og verkstæði. Flest fyrri verkefni fyrirtækisins eru á Suðurlandi en við lítum svo á að landið allt sé okkar starfssvæði og því gerum við tilboð í verk utan Suðurlands.
Á meðal tækjabúnaðar fyrirtækisins má nefna:
Skotbómulyftari JCB
Skyjack vinnulyfta
Hilti Kjarnaborvélar
Partner Steinsagir
Gólfsög



