27.05.2009
Įr lišiš frį Sušurlandsskjįlftanum
Næstkomandi föstudag, 29. maí 2009, er rétt ár liðið frá stóra Suðurlandsskjálftanum sem mældist upp á 6,3 á Richter. Eins og alþjóð veit varð mikið tjón í jarskjálftanum og allt frá seinni parts síðasta sumar hafa KJ verktakar unnið að viðgerðum á mannvirkjum sem skemmdust. Enn er töluvert í land með að búið sé að gera við allar skemmdir og margir húseigendur hafa ekki enn fengið tjón sitt bætt. Við hjá KJ verktökum gerum reglulega tilboð í slík verk og nú, ári eftir skjálftann, erum við enn að fá beiðnir um að gera tilboð í ákveðin verk. Meira »08.05.2009
Endurgreišsla į viršisaukaskatti
Fjármálaráðuneytið hefur nú gefið út tvær reglugerðir samkvæmt frétt frá ráðuneytinu, um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði o. fl. Annars vegar er um að ræða reglugerð um tímabundna aukna endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við tiltekið húsnæði. Sú reglugerð er sett með vísan til laga sem samþykkt voru á Alþingi í byrjun mars um að endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði skuli nema 100% í stað 60% af vinnu sem fram fer á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. janúar 2011. Samkvæmt lögunum nær þessi heimild jafnframt til vinnu við frístundahúsnæði og húsnæði í eigu sveitarfélaga. Markmiðið með breytingunum ... Meira »22.04.2009
Glęsilegur bśstašur afhentur
KJ verktakar smíðuðu þetta glæsilega sumarhús og afhentu eigendum snemma í vor. Þetta er heilsárshús, vel á annað hundrað fermetrar að stærð, og staðsett á góðum stað í Grímsnesi. Bústaðurinn er afar vandaður af allri gerð og nýtur sín vel í fallegu umhverfi. Sumarhúsasmíði er hluti af starfsemi KJ verktaka og gerum við tilboð í smíði á bústöðum um land allt. Meira »Nś er góšur tķmi til aš byggja
Í kjölfar efnahagskreppunnar á Íslandi ákvað ríkisstjórnin að þeir sem ráðast í endurbætur á húsnæði sínu, eða nýbyggingar, geti fengið endurgreiddan allan virðisaukaskatt af aðkeyptri vinnu. Þessi ákvörðun lækkar kostnað verulega og því er kjörið tækifæri að ráðast í framkvæmdir nú. Þeim sem hafa hug á að kynna sér málið frekar er velkomið að hafa samband við okkur í síma 894-8527.




